Home
Vorsýning Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Halldóra Halldórsdóttir   
Föstudagur, 14. maí 2010 14:06

 

Vorsýning 

 

Okkar árlega Vorsýning verður haldin í leikskólanum Undralandi föstudaginn 21. maí frá kl:16.00-18.00. 

Allir eru velkomnir í leikskólann að líta á verk barnanna.

Klukkan 16:30 syngja leikskólabörnin nokkur lög fyrir gesti.

Foreldrafélagið verður með kökubasar í leikskólanum á meðan sýningu stendur, í fyrra fengu færri en vildu.

Tilvalið er að enda vikuna á að mæta á þennan menningarviðburð og njóta listarinnar sem hinir ungu listamenn hafa skapað og krækja sér í köku. 

Vorsýningin er hluti af menningu og hefðum leikskólans og uppskeruhátíð barnanna.

 

Leikskólinn Undraland, Hrunamannahreppi, 845 Flúðir

Sími: 480 6620 Netfang: undraland@undraland.is

Höfundarréttur © 2010 Leikskólinn Undraland. Öll réttindi áskilin.
Joomla! er frír hugbúnaður gefinn út með GNU/GPL leyfi.