|
Skrifað af: Halldóra Halldórsdóttir
|
|
Mánudagur, 07. júní 2010 08:49 |
|
Í þessari viku er fjallgönguvika og er stefnan tekin á hina ýmsu hóla og hæðir hér í nágerninu. Á morgun höldum við á Miðfell og göngum yfir fjallið og grillum heima hjá Öddu Siggu, Móakotsbörnin verða keyrð báðar leiðir, Heiðarkotsbörnin verða keyrð til baka í leikskólann og Skógarkotsbörnin ganga til baka meðfram fjallinu. Þeir foreldrar sem hafa áhuga á því að koma með eru velkomnir. Göngugarparnir leggja af stað frá leikskólanum kl. 9:00. |
|
|
Skrifað af: Halldóra Halldórsdóttir
|
|
Þriðjudagur, 01. júní 2010 14:01 |
|
Í þessari viku erum við með Garðyrkjuviku. Þá setjum við niður kartöflur, förum í heimsóknir á garðyrkjustöðvar og fáum jafnvel plöntur hjá þeim.
Í júní verða allir dagar dótadagar. |
|
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 01. júní 2010 14:04 |
|
Skrifað af: Halldóra Halldórsdóttir
|
|
Föstudagur, 14. maí 2010 14:06 |
|
Vorsýning
Okkar árlega Vorsýning verður haldin í leikskólanum Undralandi föstudaginn 21. maí frá kl:16.00-18.00.
Allir eru velkomnir í leikskólann að líta á verk barnanna.
Klukkan 16:30 syngja leikskólabörnin nokkur lög fyrir gesti.
Foreldrafélagið verður með kökubasar í leikskólanum á meðan sýningu stendur, í fyrra fengu færri en vildu.
Tilvalið er að enda vikuna á að mæta á þennan menningarviðburð og njóta listarinnar sem hinir ungu listamenn hafa skapað og krækja sér í köku.
Vorsýningin er hluti af menningu og hefðum leikskólans og uppskeruhátíð barnanna. |
|
Skrifað af: Halldóra Halldórsdóttir
|
|
Miðvikudagur, 05. maí 2010 15:20 |
|
Í þessari viku fara fram foreldrasamtöl. |
|
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 05. maí 2010 15:21 |
|
Skrifað af: Halldóra Halldórsdóttir
|
|
Miðvikudagur, 21. apríl 2010 15:57 |
|
Í dag kvöddum við veturinn með Vorhátiðinni okkar. Við fórum snemma út og fórum í leiki, parís, smíðuðum, krítuðum og lékum með fallhlífina. Hamborgarar voru settir á grillið og fór borðhald fram undir berum himni. 1. og 2. bekkur komu og skemmtu sér með okkur. Öll börnin fengu andlitsmálun sem vakti mikla lukku.
Takk fyrir veturinn og Gleðilegt sumar. |
|
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 21. apríl 2010 16:05 |
|
|
|
|
|
|
Síða 2 af 8 |