|
Skrifað af: Eydís Helgadóttir
|
|
Mánudagur, 16. nóvember 2009 14:18 |
|
í tilefni dagsins sóttu nokkrir nemendur úr 10. bekk Flúðaskóla okkur heim og fluttu fyrir okkur ljóð. Nemendur Undralands hlýddu andaktug á flutninginn og þökkuðu fyrir sig með miklu lófataki.
Takk fyrir skemmtilega og fræðandi heimsókn.
Kveðja frá öllum á Undralandi.
Hægt er að sjá myndir inni á Heiðarkotssíðunni. |
|
|
Skrifað af: Eydís Helgadóttir
|
|
Mánudagur, 09. nóvember 2009 08:41 |
|
Miðvikudaginn 11. nóvember er leikskólinn lokaður vegna skipulagsdags hjá starfsfólki Undralands.
|
|
Skrifað af: Eydís Helgadóttir
|
|
Mánudagur, 02. nóvember 2009 13:34 |
|
Þessa viku standa foreldrasamtöl yfir. Allir foreldrar og forráðamenn ættu að hafa fengið tímasetningu fyrir samtalið í tölvupósti í vikunni sem leið. Ef tíminn hentar ekki látið viðkomandi deildastjóra vita og þeir finna nýjan tíma.
|
|
Skrifað af: Eydís Helgadóttir
|
|
Fimmtudagur, 15. október 2009 10:18 |
|
Afar og ömmur þið eruð frábær!
Í gær héldum við afa og ömmu daginn okkar. Dagurinn var í alla staði vel lukkaður og ánægjulegt að sjá hversu margir gáfu sér tíma til að koma og taka þátt í leik og starfi barnabarnanna sinna. Dagur sem þessi skilur mikið eftir sig fyrir okkur í leikskólanum, bæði börn og starfsfólk og vonandi ykkur líka.
Bloggsíða eða dagbókarsíða Heiðarkots liggur niðri í augnablikinu.
Við eigum einnig í örlitlu brasi með að setja myndir inn á heimasíðuna og vonum að úr rætist hið fyrsta.
Kveðja börn og starfsfólk Undralands.
|
|
Skrifað af: Halldóra Halldórsdóttir
|
|
Föstudagur, 09. október 2009 11:01 |
|
Frá og með 15. október breytist opnunartími leikskólans úr 8:00-17:00 í 8:00-16:00.
Kveðja Leikskólastjóri og Fræðslunefnd |
|
|
|
|
|
|
Síða 6 af 8 |