Home
Leikskólinn Undraland
Dagur leikskólans Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Eydís Helgadóttir   
Fimmtudagur, 04. febrúar 2010 16:14

 Í tilefni af Degi leikskólans sem er 6. febrúar ár hvert

 opna nemendur Undralands listaverkasýningu.  

 

Sýningin opnar formlega á morgun 5. febrúar kl: 9.30 í Samkaup/Strax.  Verkin sem eru til sýnis eru tileinkuð Karladeginum okkar.

 

Unga listafólkið mun taka lagið við opnunina og gefst gestum hér einstakt tækifæri til að heyra í listamönnunum og spjalla við þá sjálfa um verkin.

Sýningin verður opin út febrúarmánuð á opnunartíma Samkaup/Strax.

Allir velkomnir.

Hlakka til að sjá ykkur.

Kveðja Eydís Helgadóttir

 

Læt fylgja hér slóðir með lesefni um Dag leikskólans.

 

http://roggur.blog.is/blog/kristindyr/entry/769770/

 

http://bella.mrn.stjr.is/utgafur/dagur_leikskolans.pdf

 
"Í leikskóla er gaman..." Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Eydís Helgadóttir   
Fimmtudagur, 28. janúar 2010 11:32

Nú er viðburðaríkur og skemmtilegur janúar að kveðja okkur.  Góð mæting var á karladaginn okkar og gaman að sjá hversu margir gáfu sér tíma til að líta við og taka þátt í leik og starfi barnanna sinna, þetta var einstaklega  skemmtilegur dagur.  Af fleiri góðum dögum má nefna þorrablótið, allir smökkuðu hákarlinn og vakti hann mis mikla lukku hjá bragðkirlum barnanna.

Heiðarkotsbúar héldu bráðskemmtilegann Fagnaðarfund þar sem þau fluttu leikrit sem byggt var á sögunni um Grísina þrjá.

Framundan er spennandi febrúarmánuður með fjöldann allan af skemmtilegum viðburðum.  Febrúardagatalið er komið inn á heimasíðuna.

Hvet ykkur til að lesa blogg deildanna og skoða myndirnar úr starfi og leik.

 
Tákn vikunnar Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Eydís Helgadóttir   
Mánudagur, 25. janúar 2010 10:22
Tákn vikunnar er: Góðan dag.
 
Fagnaðarfundur Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Eydís Helgadóttir   
Mánudagur, 25. janúar 2010 09:10

Fagnaðarfundur sem vera átti þriðjudaginn 26. janúar frestast fram á fimmtudaginn 28. janúar á sama tíma kl: 9.40.

Allir velkomnir.

 
Tákn vikunnar Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Eydís Helgadóttir   
Þriðjudagur, 19. janúar 2010 14:47

Í leikskólanum okkar hefur Tákn með tali verið notað í nokkur ár. Tákn með tali (TMT) er leið til tjáskipta jafnframt því sem hún örvar málvitund og málskilning barnsins.

Sú nýbreytni var tekin upp nú um áramót að senda tákn vikunnar heim til allra foreldra með tölvupósti.  Markmiðið er að gera táknin sýnilegri og aðgengilegri og hjálpa okkur þannig að nota þau sem oftast og víðast.  Börnin eru dugleg að tileinka sér og nota Tákn með tali ásamt því að finna upp ný tákn séu þau ekki til.

Fyrstu táknin sem fóru heim voru tákn hvers og eins barns.  Þessa vikuna er það táknið fyrir mjólk sem við leggjum inn. 

Hvetjum ykkur til að skoða heimasíðu TMT http://www.tmt.is/

 
«FyrstaFyrri12345678NæstaSíðasta»

Síða 4 af 8

Leikskólinn Undraland, Hrunamannahreppi, 845 Flúðir

Sími: 480 6620 Netfang: undraland@undraland.is

Höfundarréttur © 2010 Leikskólinn Undraland. Öll réttindi áskilin.
Joomla! er frír hugbúnaður gefinn út með GNU/GPL leyfi.